Brynja Sóley

Welcome to Wonderland !!!

08.04.2007 11:21:23 / hateful

8. apríl 2007, páskadagur :)

Jæja... ég hef ekki bloggað hérna í hundrað á þannig ég ákvað að slá til, þó ég efist nú um að þetta sé vinsælt lesefni geri ég það samt :) Ég á svo ógeðslega sæta kisu... núna er hún að troða sér oní einhverja innkaupapoka, þar finnst henni gott að vera. En já, þessir 2 mánuðir (eða eitthvað) síðan ég bloggaði seinast eru bara búnir að vera rólegir. Er bara að vinna á Kultura og gengur bara svona skítsæmilega, þau allavegana búin að splæsa á mig TIGI námskeiði þannig maður fer að hallast að samningnum :) Ég geri nú voða lítið annað en að vinna. Vinn allan daginn, sæki Björn og svo fer hann annað hvort á æfingu eða í tölvuna :/ já, mikið mannblendinn maður þar á ferð. En svona talanði um Bjölla þá er ég svo svakalega stolt af honum. Lister, hljómsveitin hans, er allveg feitt að meika það (allavegana hjá þessum littla aðdáendahóp) mér finnst náttúrulega eindregið að strákarnir ættu að taka sig til að fara að spila meira opinberlega, þeir eru allveg þrusugóðir, svo skemmir náttúrulega ekki fyrir hvað þeir eru allir fjallmyndarlegir :) EN jæja ég hled að ég fari og vekji kallinn, vorum að spá í að ksellast í sund sona fyrripartinn fyrir matarboðið :) Kjerlig hilsen Brynja Sóley

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 14:20:21 / hateful

15.11.06

Halló.... ég er pottþétt lélegasti bloggarinn á landinu. Er þetta ekki frekar pointless dæmi að blogga ? Maður heldur að maður sé svo interesting að allir vilji vita hvað gengur á hjá manni....:) En jamm ég ætlaði að skrifa eitthvað vitsmunalegt eins og hann Bjölli gerir alltaf (www.bjolli.blog.is) en ég get það ekki.. ég er bara ekki svona gáfuð og svo alltaf þegar ég reyni að segja gáfulega hluti þá hljóma þeir heimskulega. T.d. sá ég í fréttunum í vikunni að það var verið að tala um villtu hreindýrin austur á héraði en ég hafði ekki hugmynd um að hreindýr væru villt á íslandi, hélt að þau væru bara í Húsdýra og Fjölskyldugarðinum, og þegar ég spurði mömmu horfði hún bara á mig eins og ég væri vitlaysingur og sagði : hvar varst þú þegar farið var yfir þetta í skólanum....... c´mon ef maður spyr ekki veit maður ekki.. ekki satt?? En jæja..... þetta er nóg og já ef þú villt lesa eitthvað gáfulegt lestu þá www.bjolli.blog.is.... Takk fyrir mig xoxo

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 21:59:08 / hateful

Líf og dauði

Ég þekki mann sem mér þykir ægilega vænt um.. ég veit ekki afhverju, hann hefur aldrei verið neitt sérlega góður við mig.... ef eitthvað hefur hann verið frekar vondur við mig. En nú er það svoleiðis að þessi maður er að deyja. Hann liggur í rúminu sínu allan daginn, orðinn 20 kíló, borðar ekki, pissar og kúkar bara á sig, nær rétt svo að taka lyfin sín og hann gerir ekkert annað. Hann er á morfínsprautum og contalgin töflum og fullt af örðu góðu þannig ég veit að honum líður ekkert illa en samt líður mér illa. Af hverju þarf að halda honum svona lengi hérna í þessu ástandi? Afhverju má hann ekki bara deyja? Æj, ég er kannski bara vitleysingur að taka svona hluti inn á mig.... ég á það líka til að þykja vænt um fólk sem er skít sama um mig, ég veit ekki afhverju. Ég get hugsað mér allavegana 5 manneskjur sem ég virði og þyki vænt um en ég hef það á tilfinningunni að þetta fólk muni varla eftir mér, þyki ekkert vænt um mig.. svona er þetta líf, það er aldrei sanngjarnt


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 16:20:53 / hateful

20.júlí

Góðann og blessaðann daginn... Ert þú búin að kíkja út um gluggann hjá þér, bjútííííífúl veður. Ég er í Fríi í dag, einnig var ég í fríi í gær og mun vera í fríi á morgunn, svona er þessi vaktarvinna ! Ég er semsagt byrjuð að vinna á Vífilstöðum sem er bara hið fínasta mál. Er reyndar enþá að læra réttu handtökin og svona en þetta kemur allt saman :) Ég ætlaði að vera allveg hrikalega dugleg og reyna að taka til hérna eftir okkur subburnar en ég bara fæ mig ekki í það í þessu veðri. Er bara búnað liggja út á svölum og sóla mig, það er reyndar allveg pointless þar sem ég verð ekkert brún, en það má alltaf reyna :) Mér grútleiðist, Bjölli er að fara út í fótbolta í kvöld en mig langar að fara að veiða (nýtt æði hjá minni). Ég, Bjölli og Bolli fórum út á Reykjavíkur bryggju í fyrradag með pínulitlu veiðistöngina sem amma og afi gáfu mér í 5 ára ammlisgjöf og reyndum að veiða....... Það gekk eitthvað illa að fá krílin til að bíta á (gæti orsakast af því að Holta kjúklingapulsan sem var á önglinum er ekkert sérstaklega bragðgóð). Það voru 3 kínverjar hliðiná okkur með sínar stóru stangir og almennilega beitu að veiða og þeir mokuðu inn....... Fengu þessa fallegu laxa og nokkra flata fiska sem ég veit ekki hvað heita :) Eftir mikinn pirring og mikla bið beit á hjá mér...... djöfull var ég spennt. Veiðistöngin mín höndlaði ekki þessi 600grömm á veiðistönginni svo við urðum að draga upp með berum höndum. En fiskurinn var ljótur og eitraður (semsagt Marhnútur)þannig ég skirpti hressilega upp í hann og hennti honum svo út í aftur ! forr gúdd lökk ! Jæja, hef þetta ekki mikið lengra :) Við ætlum að grilla og fá okkur bjór (en ekki ég) vona að þið skemmtið ykkur í sólinni Bæjó

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 17:26:23 / hateful

14.06.06

Góðan daginn eða góða kvöldið :) WOW..það er ekkert smá langt síðan ég hef skrifað eitthvað en samt sé ég að það er fólk að kíkja hingað, til að lesa ekki neitt. Það hefur margt gerst á þessum tíma, ég er orðin mamma ;) við fengum okkur nebbla litla kisustelpu hana Þyrnirós Jónas (kölluð Rósa) og er hún allger dúlla, reyndar snýr sólahringum alltaf við, sefur á daginn þegar við erum í vinnunni og vakir svo á nóttinni og bítur í tásurnar okkar. Ég er bara enþá í Bónus, gæti samt allveg hugsað mér að vinna annarstaðar, soldið leiðigjarnt starf, en mig vantar peningana. Sunna Lind kom heim fyrir nokkrum vikum og var í 2 vikur. Það var sko aldeilis spjallað og hlegið þá. Henni gengur bara vel úti á Gíbraltar með Adrian, er reyndar ekkert að vinna..... Það gengur allt sæmilega hjá mér og Bjölla, við erum ennþá svona að "læra inná" hvort annað og þetta getur stundum verið soldið erfitt en þetta er nú samt oftast bara frábært :D Svona eitt í lokin....... Ég og kallinn vorum á Nings eitt kvöldið og rakst þá á stelpu sem var með mér í árgangi í Garðaskóla og viti menn, hún bara að verða mamma.... er þetta bara ég eða er þetta ekki of snemmt ??? Anyways...... bæjó Brynja Sóley

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 11:30:59 / hateful

heyhey...

Þegar ég var að logga mig inná þetta kom eitthvað um minnsirkus, hefur einhver séð þetta? hélv rugl...

Jæja það er nú ekki mikið að frétta af mér... var loksins búnað jafna mig á þessari úber löngu flensu þegar ég fékk soldið annað, mjög óskemmtilegt, OFNÆMI FYRIR ÖLLUM ASTMALYFJUM, semsagt ofnæmi fyrir sterum og hvað, á ég þá bara að deyja eða ? annars.....

Allt gengur vel þrátt fyrir erfiðann fjárhag en það lagast, einhverntímann :D Við erum bara ógissla happy hérna í litlu snotru íbúðinni okkar :) það er svo gaman að vera ástfangin :)

Anyways... látið heyra í ykkur :)

Brynja out


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 16:07:40 / hateful

Og núna er ég að blogga :)

var að klára að vinna...... er hjá mömmu, til að geta tölvast smá..... Sko, ég er Bjölli fórum fyrir svona mánuði að skrá okkur í Og1 hjá Ogvoddafokk því það átti að vera ógeslega sniðugt því helmingurinn af þjónustunni er ókeipis og blablabla... en svo þegar kemur að því að fara að tengja tölvuna og símann þá gerist ekkert þannig Bjölli hringir niðrí Ogandskotanshelví.... og starfsmennirnir þar segja bara já og amen og ætla að mixa þessu undir eins, no problemo en nei, Bjölli er búnað hringja 4 eða 5 sinnum í þá og aldrei neitt gert þannig ég sagði við hann að ég skildi hringja næst og þeir mindu sko fá að vita hvað mér lægi á hjarta. Hvað er að þessum hálvitum að lofa gulli og grænum skógum og gera svo ekki rasgat... þeir koasmt ekki upp með það, ekki á meðna ég er á þessu jarðríki........ (evil múúúúhahahahahahaha) ahhh... þurfti að kvarta smá. :D Svo Bónus, þetta er æði, roslaega hresst og lifandi starfsfólk sem er allveg frábært... dagurinn er yfirleytt flótur að líða þannig dagurinn minn er svona.... kl 7:45 - vakna, keira bjölla í vinnuna og keira svo heim.... 10:30 - leggja af stað í vinnuna...... 8:00-8:30 - keira heim....... 9:00 - komin heim..... 9:30 - taka til (ekki eftir mig, neiiiiiiiii) 12:00-1:000 - SOFA !!! Spennó huh ? Híííhííí... núna er ég búnað blogga ýkt dugleg.... segi bara bæ og ekki djamma og fast um helgina :) (æm gonna vörk, nott party) Kv. Brynja Sóley

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 18:04:44 / hateful

Hey hey.... loksins kemst ég í tölvu :)

Já sæl og blessuð öll sömul.... Það er nú mikið að frétta af mér :)

Ég er flutt í Kópavoginn, eins og flestir vita,og líkar bara vel við :) Ég er rosalega ánægð með íbúðina, hún er lítil en fín. Þetta er 60 fermetra stúdíó íbúð með svölum og geymslu í glænýrri blokk, MEÐ LYFTU :D Já búskapurinn gengur svona upp og niður, eins og við var að búast, en maður þarf bara að venjast þessu eins og öllu öðru. Hvað er annað að frétta .... hmmm.....

já, ég er byrjuð aftur í Bónus en ekki sama Bónus, núna er ég útá Seltjarnarnesi, bara að vinna með strákum, en þaðe r fínt, þeir eru allir æðislegir :) já, me´r líkar bara asskoti vel þar.

Hmmm... held að allt sé komið í bili..... látið heyra í ykur, ég er EKKI dauð :) oki bæ

Brynja Sóley


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 19:49:02 / hateful

íbúðarleit.is

Jæja... ég er nú ekki búnað blogga mikið upp á síðkastið, það er vegna þess að browserinn í tölvunni hans Björns sem er OPERA stiður ekki blog.central dæmið :(

En núna er ég að blogga. Allt ágætt að frétta. Er búnað vera helvíti slöpp en er öll að koma til, tek því nú samt bara rólega um helgina bíst ég við. Ég þoli ekki að vera veik.

Við Björn erum á fullu að leita okkur að íbúð, en wow, aldrei bjóst ég við því að það yrði svona erfitt. algert rugl. Það var ein sem við skoðuðum í Hafnarf. sem ég var soldið skotin í. Hún er glæný, 2 ára og 2 hæða gamallt raðhús, MJÖG hátt til lofts, sér inngangur, flottar innréttingar, 2 herbergi... en hún kostaði 90.000 á mánuði og svoleiðis peninga eigum við ekki :( ég er svo spæld, þessi var fullkomin... en það hlítur eitthvað annað að koma bara :)

en jæja nóg um mig... hvað er að frétta af ÞÉR ????


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 22:11:07 / hateful

whohohohoh... minns að blogga :D

wow..langt síaðan ég hef bloggað.... Er bara að slæpast heima hjá Evu Rut að bíða eftir að kallinn minn sé búinn á æfingu...... hann er lengi... Eva Rut sótti mig í vinnuna á Subway kl 5 og við smelltum okkur í kringluna þar sem ég keipti massa flott pils :D nú á ég svalt pils :) Eftir kringluna fékk ég mér lúr í Evu rúmi... það var gott :D en hey þið people.... verið í bandi :) bæjó

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 13:49:12 / hateful

kalli kúla

Jæja.... það er búið að vera að reyna að hözzla af mér eitt stykki blogg svo hér kemur runan ...... þetta verður bara svona létt punktablogg !

Stelpudjamm í kvöld..... ég hélt að ég væri að vinna en svo var ég það ekki þannig ég kíki örugglega smá ! Það verður kjaftað og drukkið, bara stuð. Alltaf gaman að hitta kellurnar í bekknum.

Eftir stelpudjammið ætla ég að hitta Evu Rut, við geruð örugglega eitthvað skemmtó þar sem ég verð orðin vel hífuð :)

Ég og Bjölli erum allgerlega 100% búin að ákveða að fara að finna okkur íbúð :D GLEÐI !!!

Er byrjuð í nýrri vinnu, á Subway. Ætla að setja hárgreiðsluna á smá bið útaf íbúðarkaupum !

Ég nenni enganveginn að skrifa meira þannig ég segi bara bless....


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 14:48:35 / hateful

HeLgIn !!!

jess... þessi helgi var sú besta í laaaangan tíma !

Föstudagur : ég og Bjölli tjilluðuð bara heima. Mamma var uppá Snæfellsnesi hjá kallinum sínum svo að við höfðum húsið. Við tókum kvöldinu með ró, nokkrir bjórar og hresst gítarspil... afar nice :Þ

Laugardagur : já, þetta var besti laugardagur í laaaaaangan tíma. Ég og Bjölli tjilluðum bara yfir daginn, skruppum í Koló og sonna. Eftir góðann dag fórum við heim til hans og skvettum í okkur smá vodka í tonic og kannski smá bjór :S Þegar við vorum búnað fá leið á að hanga heima hringdi Smári og við kíktum til Davids þar sem Smári, David og bróðir Smára sátu að sömbri. Eftir að mér var gefinn rauður homma drykkur ákváðum við að rúlla niðrí bæ (eitt skref í burtu). Leiðinni var heitið á Grand Rokk..... það var all verulega pakka á Grand Rokk ein ég náði samt að ræna eitthverju borði þar. Við sátum þar í svolitla stund, en eftir ekki svo langann tíma vildi Bjölli bara fara að koma sér heim. Ég var sko ekki í einhverju stuði til þess þannig ég ákvað að gerast ANSKOTA DJÖRF og hringja í Evu Rut. Hún hefur ekki viljað hafa samband við mig lengi en af einhverjum ástæðum svaraði hún símanum :) Djöfull brá mér !!!! Hún var í röð fyrir utan Sircus og fór ég þangað að hitta hana. Þetta var eitthvað svo skrítið en samt ekki...... bara gaman :) Ég og Eva fórum svo á Sólon, keiptum okkur einn vodka í whatever og sátumst og spjölluðum smá...... svo var leiðinni bara heitið heim í ból.....

Sunnudagur : ég sótti Evu úberdjammara :P upp í Árbæ og skutlaði henni að sækja bílinn sinn. Svo var mér bara boðið á mat til hennar og égAUÐVITAР þáði..... þar átum við dýrindis tortilla sem er orðið að einkennis mat þessarar fjölskyldu hjá mér. Ég át yfir mig og fékk ill í magann..... Eftir matinn skelltum ég og Eva okkur á kaffihús í Firðinum sem ég man EKKERT hvað heitir, mjög kósí samt :)  Svo skutlaði hún mér heim (til Bjölla) þar sem ég sofnaði værum svefni :)

Þessi helgi var yndi, eitthvað skeði sem ég hélt að myndi aldrei ske :) Mér finnst svo gott að sættast svona...... þá er þetta bara komið, ég og Sunna búnað patsja hluti upp og nú ég og Eva líka... þetta er frábært, vona að þetta geti orðið svipað og í gamla daga þegar við vorum algerir vitleysingar, tjaldandi upp í Heiðmörk og ég veit eki hvað... en anyways...... have a nice day :) p.s. KVITTA FYRIR SIG TAKK :)

Brynja Sóley


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 23:48:12 / hateful

Brazen (weep)

I called you brazen Called you whore right to your face And watched you silently and publicly disgraced I didn't notice when you strenghted like a vice that you were trembling and burned beneath the ice Why don't you weep, when I hurt you Why don't you weep, when I cut you You don't bleed, and the anger builds up inside Why don't you weep, when I hurt you Why don't you weep, when I cut you You don't bleed, and the anger builds up inside You said a prayer and I betrayed you with a kiss I never realized that all had come to this So keep your dignity Don't throw it all to waste Stronger feelings than you've ever learned to face þið vitið hver þið eruð !!!!!!!!!!!!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 10:53:37 / hateful

.

Ég er allveg ábyggilega DUGLEGASTI bloggari á landinu :)

 Jæja ... allavegana, ég fór í MAJOR herferð um bæinn í gær. Byrjaði nottla á því að stela mömmu bíl :P og fór svo heim í sturtu og gerði mig úbersæta og fór svo til ömmu og afa. Ömmu tókst að margbrjóta á sér fótinn ( hann datt næstum því af) á Gamlárskvöld og ekki er þetta fyrsta og ábyggilega ekki seinasta skipti sem kellan slasar sig á þessu kvöldi, nebbla fyrir 3 árum datt hún og axlabraut sig. Svona er hún mikill klaufi en já, anyways, fór til þeirra og klippti afa, núna er hann úbersætur. Fór svo og skutlaði ferilskrám út um allan bæ (6 stofur) og svo var brunað í Hókus Pókus að kaupa neflokka og svo að sækja mömmu sætu. Við fórum saman í Hagkaup að versla mat og annað og ég fann SKÓ DAUÐANS, sem ég nottla keipti. Þetta eru loðfóðraðir (að innan semsagt) rúskins skór ógisla nettir og flottir í ógeðispelabbahommakúka veðrinu á þessu landi :)

Eftir þessa miklu verlsunarferð okkar fór ég barasta heim að græja mig því Bjölli var að koma að sækja mig og pikka Jóbó (nenni ekki að skrifa Jóhanna- LANGT) upp því við vorum að fara á kaffihús... veiiii. Við enduðum á KaffiVín með Te og Kaffi (bara eins og fyrirtækið:)) og skemmtum okkur konuglega. Við ræddum um margt og mikið á kaffihúsinu þ.á.m Baldur (kemur við sögu seinna:P) eftir góða 2 tíma á KaffiVín ákváðum við að fara og gefa greyið öndunum brauð, þá var okkar leið heitið niður í 10-11 Austurstræti...............

Þegar komið var niður í 10-11 fór Jóhanna inn að kaupa brauð. Ég stend fyrir utan í mínum makindum og hver labbar framhjá mér ? Enginn annar en Baldur.... Hmmmm, átti hann ekki að vera í meðferð hugsaði ég með mér, en jújú, hann er búnað vera edrú í heila 2 MÁNUÐI og er ég svo ánægð fyrir hans hönd. hann var einmitt að koma af fundi þegar ég hitti hann :D

Eftir andarbrauðsgefsluna kom ástmaður minn að sækja mig og við keirðum Jóbó heim og stunduðum svo heit og subbuleg ástarmök alla nóttina :)

THE END :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 09:19:50 / hateful

.............

 

Jæja, þá er maður að vera vitlaus á þessu samningsleysi...

Sé ekki fram á það að ég sé að fara að fá samning en ef......

....ÞIÐ VITIÐ UM

 

EITTHVAÐ ENDILEGA

LÁTIÐ MIG VITA !!!!

Takk takk

Brynja Sóley


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Íslenskar sögur !